
Uppsetning tölvupósts
Notaðu tölvupóstsforritið í tækinu til að senda og taka á móti tölvupósti í gegnum
tölvupóstsreikningana þína. Þú getur notað einn eða fleiri tölvupóstsreikninga samtímis,
þ. á m. Microsoft Exchange ActiveSync reikninga fyrir fyrirtæki.
Uppsetning á pósthólfi
1
Á Heimaskjár pikkarðu á .
2
Finndu og pikkaðu á
Tölvupóstur.
3
Fylgdu leiðbeiningunum sem birtast á skjánum til að ljúka uppsetningunni.
Fyrir sumar tölvupóstsþjónustur getur verið að þú þurfir að hafa samband við
tölvupóstsþjónustuveituna fyrir upplýsingar um nánari stillingar fyrir pósthólfið.
Öðru pósthólfi bætt við
1
Á Heimaskjár pikkarðu á .
2
Finndu og pikkaðu á
Tölvupóstur.
3
Pikkaðu á og síðan á
Stillingar > Bæta við reikningi.
4
Sláðu inn netfangið og lykilorðið, pikkaðu síðan á
Næsta. Ef ekki er hægt að hlaða
niður stillingunum fyrir pósthólfið sjálfkrafa lýkurðu við uppsetninguna handvirkt.
5
Þegar því er lokið pikkarðu á
Næsta.